Jarðskjálftinn varð í hafi, tíu kílómetra vestur af Turøyna í sveitarfélaginu Øygarden nærri Bergen í Noregi.NRKJarðskjálfti af stærðinni 3,2 varð í hafi, tíu kílómetra vestur af Turøyna í sveitarfélaginu Øygarden nærri Bergen í Noregi í kvöld, skömmu eftir klukkan sex að norskum tíma.Norska ríkisútvarpið segir að skjálftinn hafi fundist á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu.Ekki hafa borist neinar tilkynningar um tjón á fólki eða byggingum og ekki er talin hætta á eftirskjálftum. Vitni segja skjálftann hafa staðið yfir í að minnsta kosti tíu sekúndur.