„Ef þetta er satt og rétt að álagningin hafi aukist um 25 til 50 prósent, þá er það náttúrulega alveg galið,“ segir formaður Neytendasamtakanna um fullyrðingar Samkeppniseftirlitsins sem fram komu í umræðuskjali um stöðu eldsneytismarkaðarins hér á landi. Hann vill að stofnunin fari fram á að stóru fyrirtækjasamstæðurnar á dagvöru- og eldsneytismarkaði birti gagnsærri ársreikninga sem auðveldi fólki að átta sig á því hvar arðsemi þeirra verður til.