Mannæta handtekin í Ungverjalandi – Stal líkamspörtum úr kirkjugörðum og sjúkrahúsi

Lögreglan í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, hefur handtekið 30 ára gamlan mann sem er grunaður um mannát. Maðurinn stal líkamsleifum úr kirkjugörðum og sjúkrahúsi sem hann vann á.Sjónvarpsstöðin CNN greinir frá þessu.Maðurinn starfaði sem sjúkraliði á sjúkrahúsi í borginni. Hann er grunaður um að hafa stolið líkamsleifum af spítalanum og farið með heim til sín. Einnig að hann hafi grafið upp nýleg lík í kirkjugörðum, bútað niður og tekið hluta af þeim.
Mannæta handtekin í Ungverjalandi – Stal líkamspörtum úr kirkjugörðum og sjúkrahúsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd