Sérstakar blómakörfur hafa prýtt Egilsstaði á sumrin í þrjátíu ár, Guðrún Sigurðardóttir handverkslistakona og blómaskreytir sem sinnt hefur körfunum er að ljúka við að koma þeim í stand fyrir sumarið og ætlar að leggja klippurnar á hilluna þegar þær eru tilbúnar.Guðrún hefur á hverju vori undanfarna áratugi varið ómældum tíma í að koma upp blómakörfunum, planta í þær og standsetja.„Á meðan við erum að setja í körfurnar og gera þær upp þá hefur þetta verið fullt starf frá morgni til kvölds og síðan hef ég reynt að halda þeim við,“ segir Guðrún.Blómaskreytirinn sem sinnt hefur blómakörfum sem prýtt og einkennt hafa Egilsstaði í þrjátíu ár ætlar að hætta þegar körfur ársins eru tilbúnar.Körfurnar voru fyrst settar upp í tilefni 50 ára afmælis Egilsstaðabæjar 1997 - þáverandi garðyrkjustjóri