Kærumál hafa tafið byggingu nýs Landspítala um hálft ár hið minnsta að sögn framkvæmdastjóra. Áfram er þó stefnt á að hann verði tilbúinn undir lok árs 2029.Samkvæmt lögum um opinber innkaup eru verkefni Nýs Landspítala boðin út. Núna eru til dæmis í útboði upphengdar sjúkrasúlur og varaaflsvél fyrir nýtt sjúkrahús. 60 KÆRUR Í FYRRA Samkvæmt lögum geta fyrirtækin sem bjóða í verkið kært niðurstöðuna til kærunefndar útboðsmála. Kærugjald er rúmar 200 þúsund krónur.Málum sem kærunefndin sinnir fer fjölgandi. Það sem af er ári hafa nefndinni borist svipað mörg mál og allt árið 2022 – eða 40. Árið 2024 bárust nefndinni 45 mál og í fyrra 60. Ef verkefni er kært þarf oft að stöðva framkvæmdina þar til bráðabirgðaákvörðun nefndarinnar liggur fyrir.Tíminn sem það tók nefndina að svara til bráða