Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) segja nýleg umræðuskjöl Samkeppniseftirlitsins um dagvöruverð og eldsneytismarkað bera þess merki að SKE hafi á köflum „valið framsetningu sem vekur grunsemdir um háttsemi fyrirtækja áður en rannsókn er lokið.“Í þeim hafi stofnunin sett fram staðhæfingar og vísbendingar sem geti haft veruleg áhrif á orðspor fyrirtækja áður en þau hafi fengið endanlegt tækifæri til að tjá sig.Samtökin segja í yfirlýsingu að Samkeppniseftirlitið setji í umræðuskjölunum fram órökstuddar ályktanir á köflum.„Í báðum skjölunum eru t.d. settar fram sterkar ályktanir um markaðshegðun, framlegð og skort á samkeppni, þótt eftirlitið viðurkenni sjálft að rannsóknir séu enn í gangi, frekari gögn og skýringar liggi ekki fyrir og samanburður við önnur ríki