Matvælastofnun (MAST) vill að bæta myndavélum um borð í Hval 8 og Hval 9 í tengslum við eftirlit sitt með hvalveiðum í ár. Eftirlitsmaður myndi kveikja á þeim þegar eftirför dýrs hefst. Þetta væru nýmæli í eftirliti stofnunarinnar með hvalveiðum.„Stofnunin mun nýta þau gögn ásamt gátlistum sem eftirlitsfólk fyllir út á meðan á veiðunum stendur til að meta hvort veiðarnar hafi farið fram með mannúðlegum hætti og viðbrögð skipverja séu í samræmi við ákvæði reglugerðar um veiðar á langreyðum og lög um velferð dýra,“ segir í skriflegu svari MAST við fyrirspurn fréttastofu.Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, segir að myndavélarnar gætu orðið til þess að framkvæmd eftirlitsins yrði einfölduð töluvert. „Við erum að skoða hvort við getum beitt sjálfvirkari aðferðum til að taka upp sjálfar v