Loka hluta Laugardalslaugar og undirbúa niðurrif stúkunnar

Fimm pottum sunnan stúkumannvirkis Laugardalslaugar auk gufubaðs og tveimur sérklefum af fjórum verður lokað um ófyrirséðan tíma frá og með deginum í dag.Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að niðurstaða nýs áhættumats vegna stúkunnar við laugina kalli á tafarlausa lokun skilgreindra svæða. Ástand mannvirkisins er metið mjög bágborið sökum alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki.Öll þjónusta og viðvera innan stúkunnar verður færð annað og umferð umhverfis hana takmörkuð. Önnur starfsemi Laugardalslaugar verður með óbreyttum hætti.Úttektir benda ekki til þess að heildarhrun stúkunnar sé yfirvofandi en engu að síður eru metnar líkur á að brotnað geti úr henni, segir í tilkynningu.Samhliða því að tryggja öryggi kringum stúkumannvirkið er verið að undirbúa niðurrif á byggingarhl
Loka hluta Laugardalslaugar og undirbúa niðurrif stúkunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd