Bandarísk móðir á fertugsaldri hefur verið ákærð eftir að ungt barn hennar kafnaði á ópoppuðu poppkorni. Móðirin var dauðadrukkin á meðan slysið átti sér stað.Sjónvarpsstöðin CBS greinir frá þessu.Eins og hálfs árs drengur, Luke Russell Jr. að nafni, lést eftir að hafa kafnað á ópoppuðu poppkorni á heimili sínu í New York. Móðirin, hin 36 ára Oliva bithorn, hefur verið ákærð fyrir vanrækslu og manndráp af gáleysi.