Landsvirkjun hefur samið við tvo verktaka vegna stækkunar á Sigöldustöð. Samningarnir nema alls um 9,5 milljörðum króna, Ístak kemur að byggingum helstu mannvirkja vegna stækkunarinnar og þýska fyrirtækið DSD Noell GmbH vegna rista, loka og fallpípu.Samningur Ístaks kveður á um tæpa 7,5 milljarða króna og samningur DSD Noell tæpa 2 milljarða. Uppgefnar upphæðir eru án virðisaukaskatts.Núverandi stöðvarhús Sigöldu verður stækkað og reist þar ný viðbygging fyrir nýja 65 MW vélasamstæðu. Afl stöðvarinnar verður því aukið úr 150 MW í 250 MW. Sigöldustöð er ein sjö virkjana Landsvirkjunar á Þjórsársvæðinu.Undirbúningsframkvæmdir við stækkun virkjunarinnar hófust í byrjun árs 2025 en haustið sama ár var leyfi til stækkunar á Sigölduvirkjun fellt úr gildi eftir kæru umhverfisverndarsamtakanna Nát