Manni bjargað á lífi eftir átta daga undir rústum

Því var ákaft fagnað þegar manni var bjargað í dag úr húsarústum eftir jarðskjálftana í Venesúela. Hundruð björgunarliða frá sjö löndum komu að björguninni.Hernán Alberto Gil Flores, 43 ára öryggisvörður, var í vinnunni þegar stóru skjálftarnir riðu yfir á miðvikudag í síðustu viku.Manni sem hundruð björgunarliða unnu saman að því að ná undan húsarústum í Venesúela hefur verið bjargað. Hann var fastur í nær átta sólarhringa undir rústunum.Björgunarsveitir höfðu náð sambandi við hann og fært honum vatn. Björgunin var flókin og tók nokkra sólarhringa.Í morgun komust björgunarliðar í um metra fjarlægð frá honum og eftir hádegi náðu þeir honum undan rústunum. Hann var fluttur umsvifalaust á sjúkrahús.Nærri 2.300 hafa fundist látin og enn er tuga þúsunda saknað.
Manni bjargað á lífi eftir átta daga undir rústum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd