WHO segir hantaveirufaraldri lokið

Hantaveirufaraldri, sem hófst á hollenska skemmtiferðaskipinu Hondiusi fyrr á árin, eru lokið. Þetta segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin.Síðasti einstaklingur sem var útsettur fyrir smiti lauk sóttkví í dag. Alls voru 12 tilfelli staðfest, eitt grunað og þrjú dauðsföll. Ekki hefur verið tilkynnt um nýtt smit síðan 25. maí. Meira en 650 einstaklingar í 33 löndum voru útsettir.Skipið Hondius var sótthreinsað í Rotterdam í Hollandi og hefur lagt aftur úr höfn. Hondius kemur til Akureyrar 15. ágúst.Hópsmitið á Hondiusi vakti upp óþægilegar minningar um heimsfaraldur kórónuveiru. Sérfræðingar sögðu þó strax í upphafi að ekki væru líkur á heimsfaraldri, hantaveira væri þekktari og smitaðist ekki jafn auðveldlega milli manna.
WHO segir hantaveirufaraldri lokið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd