Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 lögðu af stað til veiða á ný á öðrum tímanum í dag eftir að hafa legið við bryggju síðustu daga vegna slæmra veðurskilyrða á miðum úti. Tíu langreyðar hafa verið skotnar það sem af er vertíðinni, en þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru við Íslandsstrendur frá 2023. BANDERO ENN Á SIGLINGU UNDIR VÖKULU AUGA LANDHELGISGÆSLUNNAR Mikill styr hefur staðið um veiðarnar undanfarna daga. Bandero, skip dýraverndarsinnans Paul Watson, hefur verið á siglingu innan íslenskrar efnahagslögsögu frá því um helgina, en áhöfn skipsins hefur lýst því yfir á samfélagsmiðlum að stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur. Landhelgisgæslan hefur fylgst með ferðum Bandero frá því skipið kom til landsins, bæði úr lofti og á sjó.Matvælastofnun rannsakar hvers vegna dauðastr