Hefla á og brjóta efni í Axarveg í næstu viku. Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri austursvæðis hjá Vegagerðinni, tekur undir með sveitarstjóra Múlaþings að fjármagn skorti til viðhalds vega í landshlutanum. „Ég er sammála því að við vildum gjarnan fá meira fjármagn bæði til að flýta verkefnum á samgönguáætlun en líka til viðhalds. Sem betur fer hefur vegakerfið hjá okkur ekki farið eins illa út úr umferðaraukningu eins og sums staðar á landinu. Það er alveg rétt að við höfum aðeins setið eftir að því leyti að það hefur verið mjög aðkallandi að fara í stórar aðgerðir á vestursvæði en það er innviðaskuld hjá okkur líka,“ segir Loftur. Heimastjórn Djúpavogs bókaði á fundi í síðustu viku að viðhald og þjónusta við Axarveg sé í ólestri og sveitarstjóri Múlaþings segir ástand vegarins óviðunandi.