Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir tilkynningum um vasaþjófnað sem þeim berist hafa aukist síðastliðna daga og vikur og segir þjófnaðinn vera „þaulskipulögð brotastarfsemi“ brotahópa sem koma til landsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur gripið til aukinna aðgerða vegna viðvarandi vasaþjófa á helstu ferðamannastöðum. Meðal annars sinni ómerktir lögreglumenn eftirliti.