Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir vísbendingar um þegjandi samhæfingu á eldsneytismarkaði. Á fákeppnismarkaði viti fyrirtæki mjög mikið um samkeppnisaðila og hvernig skynsamlegt sé að bregðast við samkeppni.„Oft dregur úr verðsamkeppni og fyrirtæki fara að keppa í öðru eins og þjónustu,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri. Samkeppniseftirlitið hefur olíumarkaðinn til rannsóknar. Meðal annars er til skoðunar hvort tímabundin lækkun virðisaukaskatts í maí hafi skilað sér að fullu.Í nýju skjali Samkeppniseftirlitsins kemur fram að álagning á bensín og dísel hafi hækkað mikið frá árinu 2022. Þá hafi álagningin hækkað í lok seinasta árs, stuttu áður en opinber gjöld voru felld niður í tengslum við upptöku kílómetragjalds.Sama gildi apríllok, áður en tímabundin lækkun virðisaukaskatts gekk