Landlæknir hefur í fyrsta sinn birt leiðbeiningar um notkun bóluefnis við ristli eftir að bóluefni við sjúkdómnum var markaðssett á Íslandi.Í tilkynningu frá Embætti landlæknis segir að einstaklingar greiði sjálfir fyrir bóluefni gegn ristli.Þá hefur nýtt bóluefni við pneumókokkasýkingu verið sett á markað og leiðbeiningar um notkun pneumókokkabóluefna verið uppfærðar. Fólk í áhættuhópi getur sótt um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga vegna bólusetningar við pneumókokkum.EPA-EFE