Hver græðir á orlofsfé launafólks? Þetta vill eldri borgarinn Sigurður Björnsson vita, en hann vekur athygli á því í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að það séu í það minnsta ekki launþegar sem græði á orlofsfé sínu enda séu vextir á orlofsreikningum skammarlega lágir en launþegar hafi þó ekkert val um það hvar þessir peningar eru geymdir.