EFTA-ríkin hafa gert fríverslunarsamning við Víetnam. Samkomulag náðist á ráðherrafundi ríkjanna í Reykjavík í síðustu viku þegar þeir, auk iðnaðarráðherra Víetnams, sammæltust um lok samningaviðræðnanna. Samkomulagið hefur nú verið staðfest af öllum fimm ríkjunum.„Samkomulag við Víetnam um fríverslunarsamning er stór áfangi fyrir EFTA, en samningurinn kemur til með að styrkja viðskiptatengsl EFTA-ríkjanna við eitt mest vaxandi hagkerfi Asíu. Þá er auðvitað sérstaklega ánægulegt að síðasta samningalotan hafi farið fram á Íslandi og að lokahnúturinn hafi verið bundinn á ráðherrafundi EFTA í Reykjavík,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.Þar er samningurinn sagður umfangsmikill og nútímalegur. Hann muni koma til með að bæta mark