Sakborningar í Straumsvíkurmáli í gæsluvarðhaldi til 8. júlí

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim níu sem hafa verið handteknir í tengslum við umfangsmikið kókaínsmygl til Straumsvíkurhafnar gildir til 8. júlí. Að minnsta kosti fimm þeirra hafa kært úrskurðinn.Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.106 kílóum af kókaíni var smyglað með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu í síðustu viku. Málið er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi.Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar.Ævar Pálmi segir ekki enn liggja fyrir hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald.RÚV / Ragnar Visage
Sakborningar í Straumsvíkurmáli í gæsluvarðhaldi til 8. júlí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd