„Slær frá sér eins og blindur risi“

„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Rússar gerðu gríðarlega harðar loftárásir með flugskeytum og drónum á Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Ekki er talinn vafi á að með þessu hafi Pútín og stjórn hans viljað svara árásum Úkraínumanna sem hafa valdið miklu tjóni á olíuinnviðum Rússa. ELDSNEYTISSKORTUR Í RÚSSLANDI Árásir Úkraínumanna hafa bitnað hart á eldsneytisframleiðslu í Rússlandi. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Krímskaga sem Rússar innlimuðu 2014. Bensín og dísilolía eru skömmtuð sums staðar í Rússlandi og langar biðraðir hafa myndast við bensínstöðvar. Þá hafa árásir Úkraínu leitt til verðhækkunar á eldsneyti og komið illa við olíuútflutning Rússa sem er helst
„Slær frá sér eins og blindur risi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd