Yfir tvær milljónir hermanna hafa fallið, særst eða er saknað

Yfir tvær milljónir hermanna hafa fallið, særst eða er saknað eftir átök milli Rússa og Úkraínumanna frá því að innrás Rússa hófst í Úkraínu í febrúar 2022.Bandaríska hugveitan The Center for Strategic and International Studies (CSIS) áætlar að á milli 400.000-450.000 hermenn Rússa hafi fallið en alls hafi 1,4 milljónir fallið, særst eða sé saknað.Þá telur CSIS að á milli 125.000-150.000 úkraínskir hermenn hafi fallið á sama tímabili. Alls hafi 525.000-625.000 fallið, særst eða sé saknað.Samanlagt sé fjöldi fallinna, særðra eða þeirra sem saknað því yfir tvær milljónir hermanna úr röðum bæði Rússa og Úkraínumanna.Hugveitan segir að mannfall Rússa í Úkraínu sé meira en fjórum sinnum meira en allt mannfall bandarískra hermanna samanlagt í öllum stríðum síðan í síðari heimsstyrjöld.Þá hefur h
Yfir tvær milljónir hermanna hafa fallið, særst eða er saknað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd