Skortur er á mat, eldsneyti og öðrum nauðsynjavörum í Venesúela og hætta á að sjúkdómar breiðist út. Hundruð björgunarliða keppast við að ná manni undan rústum, átta dögum eftir að mannskæða jarðskjálfta.Hernan Gil Flores, 43 ára öryggisvörður, var í vinnunni þegar stóru skjálftarnir riðu yfir á miðvikudag í síðustu viku. Eiginkona hans segir að björgunarsveitir hafi náð að tala við hann og færa honum vatn.En björgunin er sögð afar flókin og hundruð björgunarliða frá minnst sjö löndum hafa unnið að því í sameiningu síðustu þrjá sólarhringa að ná honum undan rústunum. SKORTUR Á ÝMSUM NAUÐSYNJUM Nærri 2.300 hafa fundist látin og enn er tuga þúsunda saknað. Ástandið í Venesúela hefur verið afar slæmt síðustu ár og landið því ekki vel í stakk búið til þess að takast á við náttúruhamfarir se