Vildarkerfi í verslunum Ísland Duty Free

Íslendingar geta nú skráð sig í vildarkerfið Heinemann x ME og safnað vildarpunktum í verslunum Ísland Duty Free. Með aðild opnast heill heimur af sértilboðum fyrir meðlimi, allt frá sælgæti yfir í afslátt af hótelbókunum víða um heim. Kemur þetta fram í tilkynningu.Þá safna meðlimir punktum við kaup á vörum í verslunum víða um heim og í lok árs fá svo þeir meðlimir sem hafa náð ákveðnum fjölda punkta á árinu sérstakan bónus í formi inneignarnótu. Að auki fá meðlimir afmælisgjöf í formi vildarpunkta sem þeir geta svo nýtt.
Vildarkerfi í verslunum Ísland Duty Free

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd