Álagning á lítrann af díselolíu hefur hækkað um 50% að raunvirði og um 25% á bensínlítrann frá árinu 2022. Álagning á bæði bensín og díselolíu hækkaði í samanburði við önnur Evrópulönd í aðdraganda upptöku kílómetragjalds um áramótin.Af því tilefni var olíugjald á bensíni lagt niður með þeim afleiðingum að bensínlítrinn lækkaði um u.þ.b. 90 krónur.Samkeppniseftirlitið (SKE) segir aftur á móti að olíufélögin hafi aukið álagningu sína í aðdraganda þessara breytinga, í samanburði við önnur Evrópulönd.Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju umræðuskjali SKE um eldsneytismarkaðinn.Stofnunin segir eldsneytismarkaðinn á Íslandi bera þess merki að olíufélögin fylgi keppinautum sínum í verðlagningu og séu í aðstæðum til að nýta sér þegjandi samhæfingu sem sé dæmigerð á fákeppnismarkaði.Sé miðað v