Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leður­blöku á and­litinu

Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu en þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur eftir ólifaðar.
Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leður­blöku á and­litinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd