Hafa nánast enga trú á Akureyrarliðunum í dag

Akureyrarliðin, Þór og KA, eiga leiki í Bestu deildinni í dag. Liðin eru í vanda í deildinni, sitja í 10. og 12. sæti og er langt frá síðustu sigrum þeirra. Þór vann síðast leik í 3. umferð og KA hefur tapað fimm leikjum í röð. Liðin mæta toppliðunum tveimur í dag, Þór tekur á móti KR í dag og KA heimsækir Víking sem hefur unnið tólf deildarleiki í röð. Þórsarar geta mögulega horft í það að KR hefur ekki unnið útileik í tæpa tvo mánuði og KA mætir Víkingi sem tapaði 3-0 gegn Breiðabliki á sunnudag. Næsti leikur Víkings er svo mikilvægur Evrópuleikur á þriðjudag og í draumaheimi vilja Víkingar mögulega rúlla eitthvað aðeins á liðinu. Yann Emmanuel Affi (Þór) og Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingi) taka út leikbann í dag.
Hafa nánast enga trú á Akureyrarliðunum í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd