Björn Brynjúlfsson er forstjóri Borealis Data Center sem er íslenskt fyrirtæki sem rekur gagnaver, þ.e. stórar tæknimiðstöðvar þar sem tölvubúnaður er hýstur og keyrður fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hann er auk þess formaður Samtaka gagnavera. Hann segir gagnaver hafa sífellt stærra og mikilvægara hlutverki að gegna og flokkist nú sem lykilinnviður í nútímasamfélögum.„Ljósleiðarakerfi, netsamskipti eru dæmi um stafræna innviði og þráðlaus netkerfi eins og farsímarnir okkar; þetta eru allt að verða sífellt mikilvægari innviðir og gagnaverin eru miðpunktur í þessu öllu. Þau taka á móti gögnum og vinna með þau og senda frá sér gögn með niðurstöðum þannig að þau eru lykilþáttur í þessum stafræna heimi sem við lifum í,“ segir Björn. GAGNAVER MIÐPUNKTUR GERVIGREINDARÞJÓNUSTU Gagnaverin hér á