Fern dýra- og náttúruverndarsamtök hafa krafið Matvælastofnun um að stöðva hvalveiðar Hvals hf. tafarlaust og hefji ítarlega rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra.Í yfirlýsingu frá Dýraverndarsambandi Íslands, Hvalavinum, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Samtökum um dýravelferð segir að krafan byggi á sex eftirlitsskýrslum MAST frá síðustu viku, dagsettum 22.-26. júní 2026, sem samtökin fengu afhent á grundvelli upplýsingalaga.„Að mati samtakanna benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, sem banna að dýrum sé valdið ónauðsynlegri þjáningu og kveða á um að aflífun skuli fara fram með skjótum og sársaukalausum hætti,“ segir í yfirlýsingunni.Samtökin nefna 31 mínútu dauðastríðs langreyðar sem skotin var fjórum sinnum, endurtekin atvik þar sem þurf