Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í gærkvöld. Innbrotsþjófurinn komst undan á bíl. Þjófurinn ók, að sögn lögreglu, hættulega eftir akbrautum og göngustígum í Fossvogi og reyndi svo að komast undan á fæti. Hann var handtekinn skömmu síðar og vistaður í fangaklefa.Innbrotsþjófurinn virðist hafa brotist inn um hurð apóteksins, sem er úr gleri, og búið er að setja tréplanka þar fyrir. Apótekarinn greindi frá innbrotinu á Facebook-síðu fyrirtækisins, sagði það brjóta hjartað í litla kaupmanninum og bað fólk sem hefði upplýsingar að hafa samband við apótekið eða lögreglu. STARFSMENN HOPP SÁU BÍL FYRIRTÆKISINS Í EFTIRFÖR LÖGREGLU Vísir greindi frá því í gærkvöld að lögregla hafi haft afskipti af ökumanni deilibíls Hopp-fyrirtækisins eftir að honum hafði ver