Borgarstjóri Kyiv hefur lýst yfir sorgardegi á morgun eftir það sem hann segir umfangsmestu árásir Rússlandshers á höfuðborgina nokkru sinni. Minnst þrettán féllu í árásunum og 86 særðust í flugskeyta- og drónaárásum á borgina í gærkvöldi og í nótt.Vitali Klitschko, borgarstjóri Kyiv, greinir frá því á Telegram að fánar á vegum borgarinnar verði dregnir í hálfa stöng á morgun til að minnast hinna föllnu, og að allt skemmtanahald verði bannað. Hann hvetur ríkisstofnanir og einkaaðila til að flagga í hálfa stöng.Árásirnar beindust meðal annars að fjölbýlishúsum, hóteli og heilbrigðisstofnun. Níu hæða blokk hrundi að hluta í árásunum. Víða um borgina má sjá ummerki eftir árásir næturinnar og björgunar- og leitaraðgerðir standa enn yfir.Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti var í Dublin á Írlandi