Gagnrýna niðurskurð til flugþróunarsjóðs

Flugþróunarsjóður var settur á laggirnar árið 2016 til þess að styðja við verkefni tengd millilandaflugi á landsbyggðinni, sérstaklega um Egilsstaði og Akureyri. Ferðaþjónusta á landsbyggðinni verður fyrir miklu höggi ef draga á úr fjárframlögum til sjóðsins, segir formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.Í fyrra fékk flugþróunarsjóður 100 milljóna króna viðbótarfjármagn til þess að aðstoða landsbyggðarflugvelli við að koma á reglulegu millilandaflugi um fleiri flugvelli en í Keflavík. Á fundum samtaka sveitarfélaga á landsbyggðinni og atvinnuveganefndar var lögð mikil áhersla á að festa þessi framlög til nokkurra ára, helst fimm ára, eins og gert er ráð fyrir á Keflavíkurflugvelli og menn voru bjartsýnir á að það tækist. Nú er hins vegar komið í ljós að svo verður ekki
Gagnrýna niðurskurð til flugþróunarsjóðs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd