Meiðyrðamál Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gegn Margréti Friðriksdóttur hefur tekið marga snúninga og verið afar lengi í dómsölum. Spilar þar meðal annars inn í veikindi héraðsdómarans Jónasar Jóhannssonar sem gat ekki kveðið upp dóm innan tilskilins fjögurra vikna frests frá lokum þinghalds og þurfti að endurflytja málið að nýju, samkvæmt kröfu Margrétar. Áður hafði málið tafist vegna krafna Margrétar um vanhæfi dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur til að fjalla um málið.