Stytting vinnuvikunnar hefur ekki skilað tilætluðum árangri að mati nýrrar úttektar Viðskiptaráðs. Meðalfjöldi vinnustunda hefur fallið úr 39,5 í 35,9 tíma á viku frá því að styttingin var innleidd árið 2020, sem jafngildir 223 milljörðum króna í tapaðri landsframleiðslu árið 2025, jafnvel þótt tekið sé tillit til lægri framleiðni horfinna vinnustunda. Þá hefur rúmlega helmingur ríkisstofnana stytt opnunartíma sinn. Að mati Viðskiptaráðs er tímabært að endurskoða innleiðinguna í heild.