Yfirvöld í Úkraínu óttast að margir séu fastir í rústum níu hæða blokkar sem hrundi að hluta í árásum Rússa á Kyiv í nótt.Að minnsta kosti 5 voru drepnir og 34 særðust í umfangsmiklum flugskeyta- og drónaárásum Rússa í gærkvöld og nótt. Borgarstjóri Kyiv, Vitali Klitschko, greinir frá þessu í færslu á Telegram í nótt. Mikill eldur braust út í byggingunum sem árásirnar voru gerðar á, þar á meðal fjölbýlishúsi, hóteli og heilbrigðisstofnun.Fjöldi fólks leitaði skjóls í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar. Klitschko, ráðlagði íbúum borgarinnar að halda sig í öruggu skjóli á meðan á árásunum stendur.Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti var í Dublin á Írlandi í gær og flýtti för sinni til heimalandsins þegar honum bárust upplýsingar um að árásir Rússa væru yfirvofandi. Á blaðamannafundi sagði hann