Vegavinna verður undir brúnni við Hamraborg fram til mánudagsins 20. júlí en vinna við verkið er háð veðri.RÚV / Ragnar VisageVegavinna verður á Hafnarfjarðarvegi, undir brúnni við Hamraborg í Kópavogi, frá kl. 22:00 til 06:00 fram til mánudagsins 20. júlí.Í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook í gærkvöld kemur fram að lokað verður til skiptis til norðurs og suðurs, en hjáleiðir verða merktar á staðnum.Ekki verður lokað alla dagana þar sem verkið er háð veðri.