Fjöldi látinna í jarðskjálftunum í Venesúela fyrir rúmri viku síðan er kominn upp í 2.295. Litlar líkur eru sagðar á að fleiri finnist á lífi þegar svo langt er liðið frá skjálftunum. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 50.000 manns sé enn saknað. Um ellefu þúsund manns slösuðust í skjálftunum og um þrettán þúsund manns eru heimilislaus.Alþjóðastofnanir og hjálparsamtök segja mikla þörf fyrir neyðaraðstoð á svæðinu, matur og drykkjarvatn sé af skornum skammti og sífellt fleiri þurfi á aðstoð að halda. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hóf neyðarsöfnun á þriðjudag en markmið þeirra er að safna 50 milljónum dollara til að fæða 500.000 manns í þrjá mánuði í landinu.Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir mikla hættu á að sjúkdómar breiðist út sem hægt er að koma í veg fyrir, svo sem mislingar og bar