Um 200 manns þurftu að yfirgefa heimili sín í suður Frakklandi í gær vegna mikilla gróðurelda á svæðinu. Eldurinn breiddist hratt út enda gróður mjög þurr á svæðinu eftir hitabylgjuna nýverið.Fleiri hundruð slökkviliðsmenn frá Aude og Hérault héruðum börðust við eldinn sem breiddist hratt út á yfir 800 hektara svæði. Aðstæður voru erfiðar á vettvangi fyrir slökkviliðsfólk og slökkvistarf fór að miklu leyti fram með flugvélum því ekki eru vegir um fjalllendið þar sem eldarnir geisuðu.Ekkert lát virðist á hitanum í Frakklandi. Franski fjölmiðillinn Le Monde segir að Frakkar eigi mögulega í vændum þriðju hitabylgju ársins um helgina. Franska veðurstofan spáir allt að 35-37 gráðu hita í suðurhluta Frakklands á sunnudaginn.