„Það er gul viðvörun á öllum en kannski svona 30 til 40 prósent eru á rauðu,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) aðspurður hversu mörg veitingahús á höfuðborgarsvæðinu hann telji vera í hættu. Verðlagshækkanir, há leiga, síðustu kjarasamningar og lán vegna heimsfaraldursins séu meðal þess sem plagi veitingafólk.