Sigurgeir stefnir á aðra tilraun í Lagarfljótinu

Sjósundskappinn Sigurgeir Svanbergsson stefnir á aðra tilraun til að synda niður allt Lagarfljótið síðla í ágúst, eftir að hafa þurft að hætta fyrstu tilraun sinni í júní vegna ofkælingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá teymi Sigurgeirs.Sigurgeir lagði upp í sundið 15. júní með það að markmiði að verða fyrstur manna til að synda alla leið niður Lagarfljótið, um 50 kílómetra. Hann varð hins vegar að hætta eftir um 15 kílómetra þegar einkenni ofkælingar komu fram.Líkamshiti hans mældist þá 34 gráður og var hann fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands og síðar á sjúkrahúsið í Neskaupstað. Hann jafnaði sig fljótt og var útskrifaður síðar sama dag.Samkvæmt Sigurgeiri reyndust aðstæður í fljótinu mun erfiðari en undirbúningur gaf tilefni til að ætla. Vatnsmagn hafði aukist
Sigurgeir stefnir á aðra tilraun í Lagarfljótinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd