Kona og maður voru handtekin í New York í dag eftir að hafa klifið á topp Empire State-byggingarinnar. Þar hífðu þau upp fána og virtust trúlofast áður en lögregla handtók þau.Bæði voru þau klædd svörtum grímum þegar þau klifu upp á mjóa stálgrind efst á turnspíru byggingarinnar, í um 443 metra hæð, langt fyrir ofan svæðið sem almenningi er heimilt að fara á.Þá hengdu þau upp fána á toppi byggingarinnar sem á stóð: „Þegar völd ástarinnar sigra ástina á völdum mun ríkja friður á jörð.“ Að því loknu færðu þau sig neðar á spíruna þar sem maðurinn virtist fara á skeljarnar og bera upp bónorð. Samkvæmt frétt BBC var parið á toppi byggingarinnar í um tíu mínútur. PARIÐ Í HALDI LÖGREGLU Lögreglan í New York sagði í samtali við BBC að parið hefði verið handtekið á vettvangi og væri í haldi lögr