Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stækkun friðlandsins við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hið friðlýsta svæði er alls um 1,5 km² að stærð. Með endurskoðaðri friðlýsingu nái verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu. Unnið var að friðlýsingunni í sex ár.