Niðurstöður rannsóknar á „óvenjulega löngu“ dauðastríði væntanlegar í næstu viku

Matvælastofnun er með til skoðunar hvers vegna dauðastríð langreyðar í síðasta mánuði tók meira en hálftíma eftir að hún hafði verið skotin. Yfirdýralæknir gerir ráð fyrir niðurstöðum í næstu viku. DAUÐASTRÍÐ SEM VARÐI 31 MÍNÚTU Hvalur 8 veiddi langreyðina þann 22. júní og var hún skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu stofnunarinnar. Í öðru skoti sprakk sprengiskutullinn ekki. Áætlaður tími frá fyrsta skoti og þar til dýrið drapst var 31 mínúta.Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá MAST, að þetta sé óvenjulega langt dauðastríð. Slíkt sé alltaf litið alvarlegum augum. Samkvæmt reglugerð um veiðar á langreyðum sé markmiðið að dýrin drepist samstundis. Öll tilvik þar sem hvalur drepst ekki samstundis eða er sko
Niðurstöður rannsóknar á „óvenjulega löngu“ dauðastríði væntanlegar í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd