Skotvopn á Ólafsfirði reyndist vera leikfangabyssa

RÚV / Sölvi AndrasonLögreglan á Norðurlandi eystra lokaði götu á Ólafsfirði í kvöld eftir að tilkynning barst um mann sem væri á ferð með skotvopn í hendi. Að sögn lögreglu reyndist vopnið vera leikfangabyssa.Þetta staðfestir Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Akureyri, í samtali við fréttastofu.Hann segir manninn ekki hafa verið ógnandi. Lögregla hafi brugðist við tilkynningunni, kannað málið og rætt við manninn á vettvangi. Opnað hefur verið fyrir umferð um götuna á ný.Að sögn Barkar var maðurinn ekki að leika sér með leikfangabyssuna á ógnandi hátt. Lögregla er farin af vettvangi og málinu er lokið.
Skotvopn á Ólafsfirði reyndist vera leikfangabyssa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd