Varptíma er að ljúka og æðarbændur víða um land að klára síðustu handtökin í dúntekju.Mismunandi áherslur eru á helstu verkefni eftir hverjum hluta varptímans. Í byrjun þarf að líta eftir minkaslóðum og kortleggja ferðir refa í nágrenni ásamt því að undirbúa varpið. „Ég set mikið af heyi í hreiðrin og endurnýja hús og skjól og svona,“ segir Helgi Þorsteinsson, æðarbóndi í æðarvarpinu að Ytra-Nýpi við Vopnafjörð.„Síðan færist áherslan á flugvarginn“ máfinn og hrafninn, seinna um tímann. Á síðustu vikunum tekur dúntekjan sjálf við en Helgi segist akkúrat vera að koma dúninum í hús í dag. „Ég er búinn að ná úr einhverjum 2500 hreiðrum og er bara bjartsýnn á framhaldið.”Þegar dúnninn er kominn í hús þarf að hreinsa hann. Helgi segir það vera mikið verk sem megi bíða með haustinu. Þegar hreinsu