Bílastæðum fjölgað við Háafoss

Náttúruverndarstofnun óskaði eftir því við sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að fá leyfi til að stækka bílastæði við Háafoss.Um er að ræða 450-500 fermetra stækkun sem kemur sem samtengd viðbót við núverandi stæði og í samræmi við gildandi deiliskipulag við Háafoss. Stækkunin er til að bregðast við auknum fjölda ferðamanna að Háafossi, en í júní voru á milli 300 til 400 manns sem komu að Háafossi á hverjum degi og núverandi bílastæði eru of lítil miðað við þann fjölda.Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum í dag með fimm atkvæðum framkvæmdaleyfi til stækkunar bílastæðis við Háafoss.
Bílastæðum fjölgað við Háafoss

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd