Bilið minnkar milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins

Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að aukast. Flokkurinn mælist með 24,9% fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Þetta er mesta fylgi sem hann hefur mælst með í könnun frá því í apríl 2020 þegar fylgið var 25,1%.Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn í könnuninni, með 26,2% fylgi. Munurinn á fylgi flokkanna er þó innan skekkjumarka.Fylgi Miðflokksins dregst enn saman. Flokkurinn mælist með 15,1% og dregst saman um tvö og hálft prósentustig milli mánaða. Fylgi flokksins hefur minnkað um tæp sjö prósent frá það náði hápunkti í desember.Viðreisn mælist með 11,4% fylgi. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar nokkuð milli mánaða og fer úr 6,7% í 5,3%.Vinstri græn mælast með 5,0% fylgi og myndi það duga flokknum til að ná þremur mönnum á þing. Flokkur fólksins mælist utan þings, rétt eins og í síðas
Bilið minnkar milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd