Fertugasta N1-mót drengja í knattspyrnu hófst á Akureyri í dag. 180 lið keppa á mótinu og eru keppendur rúmlega 1600 talsins, frá öllum landshornum. Spilaður er fótbolti frá morgni til kvölds fram á laugardag.Mótið er þó ekki bara fótbolti. Bæði er mikil dagskrá á mótssvæðinu og í kringum mótið og þá þarf að gefa keppendum að borða og hýsa þá:„Heldur betur, þetta er algjör viðburður hérna á Akureyri. Við erum að fá 5-6000 manns í bæinn. 1600 keppendur að keppa og skemmta sér. Við erum með tónleika á föstudagskvöldið sem við höldum, við erum að gefa þeim að borða - þetta eru ábyggilega hátt í 18.000 matarskammtar. Þetta er heljarinnar skipulag,“ segir Arnar Gauti Finnsson, einn af mótsstjórum N1-mótsins. MIKIÐ SKIPULAG AÐ BAKI Að svona móti kemur mikill mannskapur í sjálfboðavinnu og það