Forsvarsmönnum Rio Tinto brugðið vegna smyglsins

Forsvarsmenn álvers Rio Tinto í Straumsvík segja fyrirtækið munu veita lögreglu alla þá aðstoð sem óskað verði eftir, eins og gert hafi verið hingað til, vegna rannsóknar á smygli á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi í Straumsvíkurhöfn fyrir rúmri viku. Fyrirtækið muni jafnframt fara vel yfir málið sín megin.„Okkur í Straumsvík er brugðið vegna þessa máls,“ segir í yfirlýsingu sem fréttastofa fékk senda frá upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, en þar er tekið fram að tollgæsla og eftirlit með smygli sé á hendi lögreglu og tollgæslu.Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði við fréttastofu í gær að enginn grunur væri um að starfsmenn í Straumsvík tengdust málinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu sendu forsvarsmenn fyrirtækisins tölvupóst á alla starfsmenn þar sem það var áréttað.
Forsvarsmönnum Rio Tinto brugðið vegna smyglsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd