Ríkisstjórnin tók daginn snemma með aukafundi í Ráðherrabústaðnum klukkan átta í morgun. Þar kynnti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ramma að fjárlögum 2027 sem var samþykktur á fundinum. Fjárlög verða hins vegar venju samkvæmt kynnt á blaðamannafundi þriðjudaginn 8. september og svo mælir ráðherra fyrir þeim á Alþingi 10. september. RAMMI FJÁRLAGA 2027 SAMYKKTUR Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að nú liggi ramminn fyrir samþykktur af ríkisstjórn og nú verði unnið við að fylla inní hann til að klára fjárlagafrumvarpið í haust. Grófu línurnar liggi nú fyrir. „Við höfum auðvitað orðið að taka tillit til ákveðinna breytinga sem hafa orðið á hagspám og öðru slíku, en þetta byggir á fjármálaáætlun þó með breytingum sem taka tillit til þess,“ segir Daði Már. HALLALAUS FJ